Háskóladagurinnútskrifarferð kennó

Sæl öll.

Nú er dagurinn sjálfur á morgun og verið að leggja síðustu hönd á undirbúning. Í dag fer ég að ná í vöfflumix frá vilko og sultu frá kjarnafæði :):) er en að bíða eftir svari um rjómann. Allir þeir sem að standa vaktir upp í KH'I eiga að koma með vöfflujárn til að nota á sinni vakt (þeir sem eiga ekki svoleiðist verða að fá lánað hjá vinum eða ættingjum svo að það vanti ekki járn á einhverja vaktina). Það er mjög nauðsynlegt svo að engin þurfi að skilja sitt járn eftir. Síðan eru það þeir sem að ætla að baka skúffukökur þeir verða að muna eftir því og koma með þær klukkan 10:30 upp í skóla. Við erum búin að fá leyfi til að vera með bolina okkar góðu til sölu og grifflur ef við viljum. Síðan væri gott ef að einhver sem að stendur ekki vakt væri á bakvakt upp á ef að það þyrfti að fara í bónus og kaupa eitthvað sem að vantar yfir daginn. Ég skal koma með skál og ausu til að hræra mixið í og hafa það yfir daginn. Brosandi

Þeir sem að selja eitthvað annað en kaffi og með því verða að halda því til hliðar sem að selt er þ.a. merkja við boli eða grifflur svo að bókhaldið yfir það sé rétt.

Endilega commentið inn á ef að það eru einhverjar spurningar eða hverir komi með vöfflujárn svo að allt gangi vel.

Kveðja Guðný
Glottandi

Fjáröflunútskrifarferð kennó

Ég var að fá símtal frá vinkonu minni sem er verslunarstjóri í 10/11. Þau eru að bjóða okkur að ef við komum í talningu til þeirra 27. og 28. febrúar þá fáum við 1000 kr. á mann fyrir þaðHlæjandi
Talningin er frá 20-24 bæði kvöldið og við ráðum hvort að við komum bæði kvöldin eða bara annað. Þau ætla líka að gefa okkur þetta í styrk þannig að það verður ekki tekinn neinn skattur af þessu hjá okkur.Glottandi Þannig að ef til dæmis 10 manns koma eitt kvöldið erum við að fá 40.000 í vasann sem er ekki slæmt. Endilega commentið og látið vita hvað ykkur finnst um þetta þar sem hún þarf að fá svar sem fyrst

Elva Dröfn

Fundurútskrifarferð kennó

Eigum við þá ekki bara að skipuleggja næsta fund? Hvað vill fólk, hittast í hádegi eða halda bjórkvöld(fund)? Er leikskólabrautin ekki öll á vettvangi þannig að það væri kannski erfitt að hafa þetta í hádeginu?
Það sem ég sting upp á er hádegi á fimmtudag (því þá höfum við tvöfaldan tíma) eða um kvöldið á fimmtudag ...svo er náttúrulega alltaf hægt að hafa þetta í næstu viku ...hvað segir fólk?
Kveðja,
Mæja

Útskriftartilboð Landsbankansútskrifarferð kennó

Landsbankinn verður með kynningu á tilboði þeirra á mánudaginn kl 11:50-12:40 í stofu K205. Allir að mæta, þetta eru eiginlega síðustu forvöð til að geta fengið kort frá þeim (til að borga ferðina með...). Mætið tímanlega þar sem það hefst tími kl 12:50. Er það ekki örugglega rétt að við höfum frest til 9. feb til að borga amk 1/2 ferðarinnar?
Svo bara allir í gírinn, þetta er búið að ganga svo vel hjá okkur... söfnum meiru
Kveðja,
María Björk

Kökubasarútskrifarferð kennó

Sæl öll. Ykkur finnst kannski stutt síðan að við vorum með kökubasar en við erum strax búin að fá stað fyrir þann næsta. Við ætlum að vera í Blómaval á konudaginn sem er 18 febrúar. Traffíkin byrjar þar upp úr 10 um morguninn en er mest um miðjan daginn. Fyrir þennan tíma verðum við nú búin að hittast á einhverjum fundi og ræða málin. Takið þennan dag frá...

Kveðja Guðný

FLÖSKURútskrifarferð kennó

MINNI Á FLÖSKUTALNINGU Á FÖSTUDAGINN !Gráðugur

Þar sem framundan er HELGI FRAMKVÆMDA, ætlum við að slá til og boða til flöskutalningar á föstudaginn (flöskudaginn).

Við höfum fengi leyfi til þess að telja flöskurnar inni ef við skúrum gólfið á eftir okkur (má ég pant pant). Ef það vill svo vel til að það verði sól, logn og blíða teljum við bara flöskur úti á stétt.
PLASTHANSKAR Á STAÐNUM
Öskrandi

Það er mæting klukkan 14:00 í kjallarann þar sem flöskurnar eru geymdar, miðju-stigagangurinn í Enni fyrir þá sem ekki vita.

Það eru 32 á þessum póstlista og ef allir (flestir) mæta tekur þetta enga stund. Við vorum líka öll sammála um það á síðasta fundi að hjálpast að við þetta "skítaverk". 
Koss

Allir að koma með flöskurnar sýnar úr geymslunni, the more the merrier!!

Endilega boða komu ykkar í flöskupatý!!

kveðja Flöskunefnd

Kökubasarútskrifarferð kennó



Jæja eru ekki allir komnir með svona glæsiæega köku í ofninn?

Þá er það skipulagið fyrir laugadaginn. Nauðsynlegt er að allir þeir sem að baka eitthvað en eru ekkert að vinna komi með kökurnar í Fjörðinn rétt fyrir klukkan 11 um morguninn á laugadaginn. Bakelsið á að vera snyrtilega inn pakkað og líta girnilega út. Þeir sem að eru að vinna yfir daginn geta komið með bakelsið frá sér þegar að þeir mæta á vakt.

A.T.H. Gott er að hafa innihaldslýsingu með hverju bakelsi því það eru svo margir sem að eru með ofnæmi fyrir einhverju.

Vinsamlegast setið í commentið hvað það sé sem að þið ætlið að koma með.

Hugmynd af vaktarplani:

10:30 - 12:30 Erla Susana, Eva og Árný
12:30 - 14:30 Jói, Bryndís og María Una
14:30 - 16:30 Unnur Arna, Arna Ósk og Guðný

Þetta vaktarplan var unnið úr úpplýsingum sem að ég fann um þá sem að gátu unnið á laugadaginn og tók ég tillit til tímamarka sem að sumir óskuðu eftir. Gæti verið að einhver svör frá einhverjum sem að vildu vinna hefðu týnst í öllum tölvupóstinum sem að ég hef fengið síðustu dag. Svalur Ef svo er þá endilega látið vita af ykkur.

Vinsamlegast setið í commentið hvað ykkur finnst um vaktarplanið.

Svo er það allt um verið: (hugmynd)

Terta 2000 - 2500 kr. (eftir stærð)
Muffur/riscrispe 10 stk. í pokka 1000 kr.
Jólakaka/marmarakaka 1000 - 1500 kr. (eftir stærð)
o.s.frv.

Ég kem með miða sem hægt er að nota til að merka kökurnar.

Hvernig lýst ykkur á þessa verðskrá ?

Svo er bara að segja það sem að ykkur finnst vanta upp á eða ykkur finnst alveg afbragðs vel sett  fram.
 Þögull sem gröfin

Kveðja Guðný

Kökubasarútskrifarferð kennó

Sæl öll.

Spurningin er hvort að við gætum hist annaðkvöld (miðvikudagskvöld kl 20:30) ef þið vilið niðri í skóla. En þá verðum við að hafa góða mætingu og skipuleggja þetta vel svo að allt gangi smurt á laugadaginn. Endilega látið í ykkur heyrast með þennan fund mér finnst það nauðsynlegt.

Kveðja Guðný Glottandi

Ps. Þeir hjá korninu í Kópavogi ætla að gefa okkur einhverjar kökur FLOTTIR 'A ÞVÍ

BOLASALAútskrifarferð kennó

Sæl allir útskriftarnemar...
Mig vantar að vita hvort að einhverjir voru búnir að skrá sig í bolasöluna þessa vikuna?
Pósthólfið mitt krassaði í dag, það var fullt ;-( . það vantar tvo sölumenn hvern dag og það væri flott ef einhverjir hefðu tök á að selja út fyrir skólann t.d. í leikskólum, hægt er að nálgast sýnishorn og skrá á sig 2-4 stk..
þetta gefur góðan aur og nú er bara að selja .....


 23 janúar Þriðjudag   ? + ?  (man ekki nöfnin)
24 janúar Miðvikudag Guðný +?
25 janúar fimmtudag Árný + Júlía Þ.
26 janúar föstudag Sara og Unnur

29 janúar mánudagur - Helga +  María leikskólabraut
30 janúar þriðjudag  Elva + María leikskólabraut
31 janúar miðvikudag Elva + ?
01 febrúar fimmtudag Árný +
02 febrúar föstudag María Una og Erla S.

endilega sendið mér email á arnystef@simnet.is ef þið getið unnið, þetta er eingöngu í hádeginu.

mbk. Árný

Allir að bakaútskrifarferð kennó

Nú er komið að því að halda kökubasar. Skráið hér í commentið upplýsingar um það sem að þið ætlið að baka og hvenær þið komist til að standa vaktina... Þeir sem að eru ekki í nefndinni er líka velkomið að leggja sitt að mörkum og baka eitthvað gott.

Kveðja Guðný

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...